Færslur: 2011 Júní

06.06.2011 18:59

Vorið búið

og ég held að það sé nú bara að koma vetur aftur! emoticon Endalaus kuldi og rok alla daga, varla komið stingandi strá á tún né úthaga.  Mér sýnist að ráðleggingar Ráðunautaþjónustunnar snemma í vor fari fyrir lítið; mjög ólíklegt að heyskapur verði í fullum gangi um miðjan júní!  Með þessu áframhaldi verður fyrri sláttur ekki fyrr en í ágúst!
En þetta hefur þó einn kost, maður ætti að geta riðið á landsmót sæmilega slakur (heyskaparlega séð), en þá gæti nú bara verið að allt sé í spreng út af fjárkeyrslunni á heiðina!  Ef það er ekki eitt þá er það bara eitthvað annað.... emoticon

Sauðburði er hér um bil lokið. Ja, svona +/- 20 hausar sem bera eftir dúk og disk og bera jafnvel ekki nokkrum sköpuðum hlut.  Það var nú sko ekki vandamál að láta hrútana damla í kindunum fram eftir öllu neihei!  Fyrr en núna reyndar.  Verðum að muna að vera ekki svona ægilega sperrt næsta vetur þegar kemur að því að taka hrútana úr, " lamb seint er betra en ekkert lamb"  er óttaleg klisja! 


Valgerður Emma með svarta hrútinn sinn.

Annars hefur gengið bærilega, ekkert lambalát þetta árið sem er vel.  Flest lömbin lifað og sum drepist, já svona eins og gengur.  Ragnar Logi fékk 4 lömb, Kolbrún á 3 á lífi og Valgerður 5 lömb. Nú er bara að vona að lömbin þeirra skili sér öll í haust svo þau fá eitthvað innlegg! 


Hrúturinn hennar Kolbrúnar. 

Garðar kveikti í sinu eins og vanalega, með fullu leyfi frá mér og öllum hinu háu herrunum sem þessu ráða. 


Vatnsnesingar sáu líklega lítið þennan dag. 

Ég frétti það að einn sveitungi hefði víst haft á orði að hann skildi ekki hvaða sinu Garðar hefði getað kveikt í, þar sem enga sinu væri að finna hér á Stórhóli.  Hann hefði betur átt að vera í bíltúr á Vatnsnesinu þennan dag, þá hefði hann fengið að finna fyrir sinunni hehehehe....emoticon

Það eru komin nokkur folöld, og ekkert þeirra er brúnblesótt. emoticon  


Ekki alveg rétti liturinn.  emoticon

Flest þeirra eru einlit, en sum þeirra eru með vagl í auga eða glaseygð. 


Rauðstjörnótt hryssa, undan Olgu og Dísil.

Dísill hefur eitthvað verið að spara litina, kannski það hafi verið einhverjar stíflur í honum blessuðum. Það var því afráðið að nota hann aftur í sumar og vona að losnað hafi um litatappann hjá honum! emoticon

Bylting var sýnd í kynbótadómi í seinustu viku.  Hún fékk 7,62 í aðaleinkunn sem ég er býsna sátt við eftir ekki meiri þjálfun.  Hún fer í hvíld núna og verður svo tekin með trompi næsta vetur, býst við að hún endi í minnst 8,80 næsta vor.... svona hérumbil!  emoticon   Ég sá því miður ekki yfirlitssýninguna þannig að ég hef enga nýja mynd af henni.

Jæja, búin að ausa því helsta úr mér, ætla að fara að leggjast á bæn og biðja um betra veður.  Ráðlegg ykkur að gera slíkt hið sama!

  • 1
Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 184127
Samtals gestir: 60713
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 10:20:50