Blogg
16.3.2010
Ó snoð...
Já, seinni umferð í rúning er hafin. Það er sko ekki magnið af ull á kindunum sem veldur þessari áráttu að rjúka til og rýja kindurnar aftur né heldur ánægja yfir þessu verki, heldur er svo óskaplega leiðinlegt að hreinsa af þeim sneplana á haustin ef snoðið er ekki tekið.

Græjan stillt og kindin komin á vísan stað ;-)
Garðar er búinn með rúning í gömlu húsunum og að hluta í nýju húsunum, þetta smá potast :-)
Gemlingarnir að gúffa í sig fóðurbæti....namminamm!!

Tvílembdu gemlingarnir
Auðvitað verð ég að setja inn mynd af uppáhalds *þóhúnsékollótt* kindinni minni!

Frekja 08-088
Bara að sýna ykkur hvað henni Frekju er annt um bogadregnar línurnar sínar:

Frekja er þessi í miðjunni, eins og uppblásin blaðra!
Mætti halda að inn í þessum maga leyndust amk. 7 lömb- ef ekki 10, en ekki bara 2 eins og ómskoðun segir til um! En það er víst ekki ummálið sem skiptir máli í þessu..

Bjalla 08-503
Að lokum er svo mynd af skoffíninu henni Bjöllu, sem bíður spennt eftir að komast að í rúningnum.....eða þannig. Allavega fylgist hún vel með hvað rúningsmaðurinn er að bralla, líklega að reyna að úthugsa einhverja flóttaleið ;-) Hornin á henni orðin ansi myndarleg miðað við ungan aldur, hún verður orðin vígaleg eftir nokkur ár! Einhverjum myndi bregða við að mæta þessari í myrkri ;-)
Lítið er af öðrum fréttum, ég er búin að liggja í flensu síðan á föstudaginn seinasta. Er loksins aðeins að hressast við enda ekki seinna vænna! Ætla mér nefnilega á reiðnámskeið á fimmtudaginn og hef engan tíma í svona flensu vesen!
Garðar keppti í fimmgangi á föstudagskvöldið, frumraun hans og Glaðs í þeim efnum. Þeir komust nú ekki í úrslit en Róm var nú ekki byggð á einum degi ;-)
Ég var nú fegnust því að Garðar komst lifandi í gegnum þessa frumraun, þar sem að það lá við að ég heyrði í mjööög svo örum hjartslætti hans alla leið frá Hvammstanga og heim....
Annars er liðakeppnin orðin ískyggilega spennandi, bara nokkur stig sem skilja liðin að og einungis eitt mót eftir. Þetta verður æsispennandi lokamót, en keppt verður í tölti 9. apríl næstkomandi.
Áfram lið 3-Víðidalur!!

7.3.2010
Mars
Jamm og jæja, það er víst kominn mars!
Það er svo sem lítið að frétta þessa dagana, dagarnir fljúga áfram og áður en við vitum af verður komin sauðburður! Ekki amalegt :-)
Það er búið að fósturtelja hjá okkur og erum við svona sæmilega sátt með útkomuna. Í það mesta er af geldum ám, reyndar er nú ekki víst að þær séu allar geldar þar sem ekki var það langt liðið síðan hrútarnir voru teknir úr. Mér telst til að við höngum í 1,8 lömb per kind, sem er kannski ekki svo agalegt miðað við að þær eru veturgamlar. Maður vill víst alltaf meira, það vantar ekki heimtufrekjuna!

Svo sæt :-)
Hestarnir hafa svolítið setið á hakanum seinustu tvær vikurnar. Bæði vegna veðurs og svo var kominn tími á að járna upp dágóðan slatta.
Ég fékk svo skemmtilegan glaðning um daginn, eignaðist eitt stykki hest ;-)

Glaður
Þetta er hann Glaður, sem hún Jasmin í Sviss gaf mér. Eigum við ekki bara að kalla þetta snemmbúna afmælisgjöf, maður fær nú ekki svona fína "pakka" á hverjum degi ;-)
Hann er búinn að vera í tamningu í Söðulsholti og greinilega fengið alveg sérdeilis fína tamningu þar. Þau fá stóran + þau Dóri og Iðunn frá mér.
Allavega, þetta er bráðskemmtilegur foli, svolítið skeiðmegin á töltinu en á öruggulega bara eftir að batna. Hann er ættaður frá pabba, og alinn upp hér en þess vegna er nú þessi hestur kominn í mínar hendur.
Garðar verður heldur betur að gera vel við mig í afmælisgjöfinni í ár , ég gaf honum nú bíl í fyrra sko!

20.2.2010
Öskudagur og fleira
Það var aldeilis stuð á öskudaginn, þvílíkur spenningur hjá krökkunum!

Hér má sjá hann Ragnar Loga, sem var Horror... eitthvað.....skipti engu hvað-bara að það væri eitthvað í þessum dúr!

Skotturnar tvær, Kolbrún engill og Valgerður prinsessa.
Sem betur fer slapp til með veðrið á öskudaginn, en skólahald féll niður á mánudeginum. Það er nú ekki hægt að segja að það sé kominn neinn rosa vetur hérna, smá föl yfir og veðrið orðið stillt og gott aftur.
Svo í gærkvöldi var brunað á Blönduós þar sem að Garðar var að keppa í smala.

Hér má sjá smalann mikla að störfum, þið verðið að afsaka þessar hörmungarmyndir, það er alveg skelfilegt að reyna að ná nothæfum myndum innandyra!
Allavega....þessi frammistaða skilaði Garðari 2. sætinu í áhugamannaflokknum.

Hér sjáið þið svo sigurvegara áhugamannaflokksins, Halldór á Súluvöllum.
Alveg stórmerkilegt hvað hann stóð sig vel, svona miðað við að vera vanur að notast yfirleitt bara hunda við smalamennskuna!
Annars má sjá ítarlegri úrslit hérna og stöðuna í liðakeppninni.

Hér sjáið þið efstu knapa í unglingaflokk, sigurvegarinn lengst til hægri.
Náttúrutalent þessi gutti, skaut þeim ref fyrir rass þessum eldri í flokknum en hann er á 11. aldursári ef ég man rétt :-)

Áhugamannaflokkur/2.flokkur.

Atvinnumennirnir/1 flokkur. Hann sigraði Jóhann á Bessastöðum.
Jæja, læt þetta gott heita í bili, búin að koma frá mér nokkrum línum eins og ég var búin að lofa:-)

13.2.2010
Rekstur í sumarblíðu
Stórhóls-, Hrísa- og Efri-Fitja bændur skelltu sér í rekstur í gær. Við rákum okkar hross fram í Hrísa þar sem öll hrossin sameinuðust og svo fór heila hersingin alla leið fram í Efri-Fitjar...og að sjálfsögðu til baka aftur ;-)

Hlaupa,hlaupa,hlaupa!!!

Ef þetta er ekki gaman þá veit ég ekki hvað!

Sólgleraugnagellurnar ;-)
Öll hross skiluðu sér heil á húfi til baka, vel sveitt og þreytt- maður mætti alveg vera duglegri að leyfa þeim að hlaupa svona :-)

Þessum fugl náði Fanney inni í bílskúrnum á Efri-Fitjum og nú mega fuglafræðingar láta ljós sitt skína! ;-) Við héldum fyrst að hann væri svona særður á hausnum en hann var nú bara svona á litinn. Ekki þekki ég nóg til fugla að ég geti sagt ykkur hvaða tegund þetta er!
Annars er barasta spáð vetri hérna á Norðurlandinu á morgun, úff það verða heldur betur viðbrigði! Býst því fastlega við að deginum verði eytt innandyra í bollubakstri! :-)

Fitjaáin falleg í blíðunni :-)
Gott í bili, hendi inn færslu eftir öskudaginn :-)

5.2.2010
Blíða!
Jæja, þá er þorrablótinu hér í sveitinni lokið. Við vorum í þorrablótsnefndinni í ár ásamt fullt af mögnuðu fólki hérna úr sveitinni. Þess vegna hef ég lítið látið sjá og heyra í mér hérna, þar sem síðustu vikuna voru flest kvöld notuð til æfinga. Og ég held að þetta hafi bara tekist alveg ljómandi vel hjá okkur :-)
Að vísu er Garðar svona eiginlega andlegt hrak eftir þetta, enda er hann ítrekað búinn að segja við mig eftir þetta að hann ÆTLI AAAAAAAALDREIIIIIIIIIIIIII AÐ LEIKA SVONA AFTUR! Hehehehe....hann var býsna skrautlegur blessaður, eftir að hafa drukkið í sig kjark allt kvöldið svo hann þyrði nú á sviðið ;-) Og það var nú ekki til að bæta það þegar það voru komnar myndir af honum í fullum leikskrúða á Fésbókina góðu, þá var nú eins gott að ég var með tungurótartöflurnar til taks! Hnéhnéhnéhné!
Ég á því miður engar myndir í tölvunni til að gleðja ykkur með, þið verðið bara að nota hugmyndaflugið ;-)
Það er bara alveg dæmalaus blíða alla daga. Þetta er meira að segja orðið þannig að maður vill eiginlega fara að fá smá snjó! Skrítinn er maður!
Það er svo hart að ríða út og fyrir krakkana að leika sér úti, Kolbrún greyið datt hérna á malarplaninu fyrir utan um daginn og það bara stór sá á henni :-( Það er ekki gott að detta svona á grjótharða mölina, hvað þá fyrir krakka sem kunna ekki að detta "rétt". Hins vegar var þetta lán í óláni fyrir Kolbrúnu, núna hafði hún nefnilega svo rosa spennandi sögu til að segja frá í leikskólanum og held ég flestum hafi verið sýnt blóðið sem var á úlpunni hennar ;-)

Það eru ekki mörg snjókornin sem sjást þegar maður lítur yfir landið!

Hér sjáið þið svo hann Djákna, sem er víst ekki lengur kynbótabomban hans Garðars...næsti Orri frá Þúfu í hundaheiminum. Ó nei.
Hann lenti undir framdekkinu á traktornum um daginn, það sá ekki skrámu á greyið hundinum eftir þetta- nema að það var eins og einhver hefði rist á punginn á honum! Annað eistað stóð semsagt út úr pungnum- lafði þarna bara eins og ekkert væri. Æðislega hugguleg saga hjá mér, ég veit.....
Það var farið með hann til dýralæknis og það var ákveðið að gelda Djákna, fyrst að svona fór. Þetta var nú eitthvað skemmt þarna niðri eftir slysið, en það er með ólíkindum að hann skyldi nú ekki einu sinni verða haltur! Já, það er ekki öll vitleysan eins...

Gamli Tvistur í blíðunni, hann er ekki á húsi núna, enda er hann bara notaður svona spari ;-)

Ég hafði mig í að skíra allt sem óskírt var hjá okkur, þessi fékk nafnið Ginfaxi. Garðar skírði sín tvö tryppi Bakkus og Bobba, ætli Garðar lendi í Bobba með Bakkus í göngunum eftir ca 6 ár?? Hahahahaha...ég er svo fyndin! :-)
Liðakeppnin mikla hefst í kvöld á fjórgangi á Hvammstanga. Ekki nema 103 skráningar takk fyrir! Ég er ekki búin að gera upp við mig hvort ég nenni að fara, það hefði verið gaman að fara að taka myndir en mér gengur alveg djöfullega að ná góðum myndum í svona birtuskilyrðum eins og í reiðhöllinni. Líklegast vantar mig meiri æfingu í reiðhallarmyndatökum ;-)
Jæja, hafið það sem allra best- þangað til næst :-)

Flettingar í dag: 41
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 99
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 96727
Samtals gestir: 29946
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 17:37:56